HeimBlogg › VerktakaNet er komið í App Store og Google Play

VerktakaNet er komið í App Store og Google Play

Nú getur þú haldið utan um allan reksturinn beint úr símanum. VerktakaNet — íslenska kerfið fyrir verktaka og iðnaðarmenn — er komið sem app á bæði iPhone og Android.

Sæktu appið í dag

Ókeypis niðurhal á iPhone og Android.

Sækja í App Store Sækja í Google Play

Reksturinn í vasanum

Með VerktakaNet appinu gerirðu reikninga, skráir tíma, fylgist með bókhaldi og hefur yfirsýn yfir verkefnin þín — hvar sem þú ert. Á verkstað, í bílnum eða heima í sófa.

Þú þarft ekki lengur að bíða þar til þú kemst í tölvuna. Reikningur sem áður tók heilt kvöld tekur nú nokkrar sekúndur, beint úr símanum um leið og verkinu er lokið.

Allt á þínu tungumáli

Appið er á þremur tungumálum — íslensku, ensku og pólsku — svo allt starfsfólkið getur notað það á sínu máli. Þú velur tungumál í stillingum og allt kerfið fylgir með.

Hvað er í appinu?

Fyrir hvern er VerktakaNet?

Fyrir íslenska verktaka og iðnaðarmenn — rafvirkja, pípara, múrara, málara, smiði og alla þá sem reka eigin starfsemi. Hvort sem þú ert einyrki eða með starfsfólk, þá heldur VerktakaNet utan um allt á einum stað.

Prófaðu VerktakaNet frítt

Reikningar, tímaskráning, laun og bókhald á einum stað — mánuður frír.

Byrja núna

Tengt efni